Úr reglugerð um tjónsuppgjörsfulltrúa
Í reglugerð nr. 1244/2019 er að finna reglur um tjónsuppgjörsfulltrúa og starfsemi þeirra.
15. gr.
Hlutverk tjónsuppgjörsfulltrúa og skilyrði fyrir viðurkenningu á þeim.
Tjónsuppgjörsfulltrúar, sem tilnefndir eru hér á landi til að koma fram fyrir hönd erlendra vátryggingafélaga skv. 4. tölul. 2. mgr. 124. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 125. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, skulu afgreiða og taka ákvörðun eða semja um skaðabótakröfur tjónþola, sem búsettir eru hér á landi, vegna tjónsatviks í öðru aðildarríki eða í öðru ríki sem er aðili að tilhöguninni um græna kortið, enda verði tjónsatvik rakið til ökutækis sem er vátryggt og að öllu jöfnu staðsett í öðru aðildarríki.
Skylda skv. 13. gr., um að gera rökstutt tilboð eða gefa rökstutt svar, hvílir ekki á tjónsuppgjörsfulltrúa hafi viðkomandi vátryggingafélag uppfyllt þá skyldu innan þriggja mánaða frestsins.
Tjónsuppgjörsfulltrúi skal vera búsettur hér á landi og vera fær um að sinna starfi sínu á íslensku. Honum er heimilt að starfa fyrir fleiri en eitt vátryggingafélag.